Andri og Karen með forystu

Andri Þór Björnsson.
Andri Þór Björnsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Andri Þór Björnsson úr GR og Karen Guðnadóttir úr GS eru með forystu í karla- og kvennaflokki eftir tvo hringi á Egils Gull mótinu í golfi sem er hluti af Eimskipsmótaröðinni. Mótið fer fram á Strandarvelli á Hellu.

Andri lék í dag á 71 höggi og er samtals á þremur höggum undir pari og er einu höggi á undan Arnóri Snæ Guðmundssyni frá Dalvík.

Karen lék á 75 höggum í dag eins og í gær. Hún er tíu höggum yfir parinu en næstar á eftir henni eru þær Ingunn Einarsdóttir, Þórdís Geirsdóttir og Berglind Björnsdóttir, allar á 12 höggum yfir pari.

Lokahringur mótsins fer fram á morgun.

Karen Guðnadóttir
Karen Guðnadóttir Ljósmynd/igolf.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert