Tveir efstir og jafnir

Bjarki Pétursson
Bjarki Pétursson Ljósmynd/GSÍ

Tveir kylfingar eru nú efstir og jafnir þegar lokahringurinn er liðlega hálfnaður á Íslandsmótinu á Akureyri. 

Bjarki Pétursson GB og Axel Bóasson úr Keili eru efstir á 7 undir pari. Á eftir þeim koma þír  á samtals 5 undir pari. Birgir Leifur Hafþórsson GKG, ríkjandi meistari Þórður Rafn Gissurarson GR og Rúnar Arnórsson úr Keili sem byrjaði frábærlega í dag. 

Hlutirnir breytast hratt þegar spennan magnast. Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR var jafn þeim Axel og Bjarka en fór illa að ráði sínu á 8. og 9. braut. Tapaði hann fimm höggum á þessum tveiur brautum og virðist vera að missa af lestinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert