Þórður komst áfram í Lissabon

Þórður Rafn Gissurarson.
Þórður Rafn Gissurarson. Ljósmynd/golf.is

Þórður Rafn Gissurarson, atvinnukylfingur úr GR, hefur tryggt sér þátttöku á öðru stigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi en hann hafnaði í 16. sæti á fyrsta stigs móti í Lissabon.

Þetta er í annað sinn sem Þórður Rafn kemst á 2. stig úrtökumótsins í sjö tilraunum.

Ólafur Björn Loftsson var einu höggi frá því að komast áfram en hann keppti á fyrsta stigs móti í Frakklandi. Ólafur Björn hefur einu sinni komist á 2. stigið í fimm tilraunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert