Hefja leik á EM í dag

Henning Darri Þórðarson.
Henning Darri Þórðarson. Ljósmynd / golf.is

Karlasveit Golfklúbbs Reykjavíkur hefur í dag þátttöku í Evrópukeppni félagsliða í golfi sem fram fer í Portúgal. Sveitina skipa þeir Andri Páll Ásgeirsson, Henning Darri Þórðarson og Vikar Jónasson en þeir tryggðu sér keppnisréttinn á Evrópumótinu með því að vinna sigur á Íslandsmóti golfklúbba í sumar.

„Undirbúningurinn hefur gengið vel. Áður en við fórum út æfðum við vel í Hraunkoti og svo spilum við tvo æfingahringi hér áður en mótið hefst. Í gær lékum við fyrri æfingahringinn og fór hann að mestu leyti í að skoða völlinn og setja saman leikplan. Í dag (á seinni æfingahringnum) keyrum við á leikplaninu og sjáum hvort við getum fínpússað það, sagði Henning Darri í viðali við vefinn kylfingur.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert