Ólafía þremur yfir pari eftir fyrsta hring í Kína

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/golf.is

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, lék fyrsta hringinn á Sanya Ladies Open-mótinu í golfi í Kína á 75 höggum, eða þremur höggum yfir parinu, en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni.

Ólafía Þórunn er í 74. sæti eftir fyrsta hringinn og ljóst er að hún þarf að gera betur á öðrum hring ætli hún að komast í gegnum niðurskurðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert