Ólafía úr leik en grátlega nálægt

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Ljósmynd/GSÍ

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Sanya Ladies Open-mótinu í golfi sem fram fer í Kína, en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni.

Ólafía var þremur höggum yfir pari eftir fyrsta hringinn í gær, en á öðrum hring í dag lék hún á 74 höggum eða tveimur yfir pari. Ólafía fékk fjóra skolla í röð á fyrstu fjórum holunum á seinni níu holunum í dag, en hún fékk tvo fugla á hringnum.

Skorið var niður við fjögur högg yfir pari, og því var Ólafía höggi frá því að komast áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert