Fögnuðu að víkingasið (myndskeið)

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir getur leyft sér að fagna vel og …
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir getur leyft sér að fagna vel og innilega í kvöld. Ljósmynd/Bret Lasky/LPGA

Kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fagnaði sætinu á LPGA-mótaröðinni, sterk­ustu mótaröð heims í golfi, vel og innilega í Flórída í kvöld.

Ólafía hafnaði, eins og áður hafði komið fram, í öðru sæti á lokaúrtökumótinu í kvöld. 20 efstu kylfingarnir tryggðu sér þátttökuréttinn og Ólafía gerði það með glæsibrag.

Frétt mbl.is: Ólafía Þórunn í hóp þeirra bestu

Að móti loknu fögnuðu Ólafía og Íslendingar í Flórída á mjög íslenskan hátt; jú með því að taka víkingaklappið.

Sjá má Ólafíu og aðra Íslendinga taka víkingaklappið hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert