Tiger missti niður flugið

Tiger Woods.
Tiger Woods. AFP

Tiger Woods lék þriðja hringinn á boðsmóti sínu á Bahama­eyj­um, Hero World Chal­lenge, á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari.

Tiger byrjaði mjög vel á þriðja hringnum og fékk fjóra fugla á fimm fyrstu holunum en hann fékk skolla á holum 13 og 14 og endaði hringinn með því að fá tvöfaldan skolla en annan hringinn lék hann á sex höggum undir pari og sýndi þar gamalkunna takta.

Tiger er í 10. sætinu á átta höggum undir pari en Japaninn Hideki Matsuyama er í forystu, 19 höggum undir pari.

Tiger Woods, sem er fer­tug­ur, var lengi efst­ur á heimslist­an­um en kepp­ir nú í fyrsta sinn síðan í ág­úst 2015, í kjöl­farið á tveim­ur aðgerðum á baki, og er sem stend­ur í 898. sæti á heimslistanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert