Tíst frá forsætisráðherranum um Ólafíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir getur leyft sér að brosa.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir getur leyft sér að brosa. Ljósmynd/GSÍ

Mikil viðbrögð voru á samfélagsmiðlunum vegna árangurs Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur á Flórída og hefur hún fengið hlýjar kveðjur. 

Forsætisráðherrann, Sigurður Ingi Jóhannsson, sagði til að mynda á Twitter að árangurinn væri stórkostlegur fyrir golfíþróttina á Íslandi. 

Birgir Leifur Hafþórsson, sjöfaldur Íslandsmeistari og eini íslenski karlinn sem leikið hefur á Evrópumótaröðinni, sendi Ólafíu fallega kveðju á Facebook þar sem hann segir Ólafíu hafa uppgötvað á síðustu mánuðum að hún sé stórkostlegur kylfingur. Ragnhildur Sigurðardóttir, þrefaldur Íslandsmeistari og einn kunnasti kylfingur landsins, segir Ólafíu einfaldlega vera átrúnaðargoðið sitt. 

Mbl.is týndi til nokkur dæmi:

Kveðja Birgis Leifs á FB
Kveðja Birgis Leifs á FB Facebook
Haukur Örn forseti GSÍ á Facebook.
Haukur Örn forseti GSÍ á Facebook. Facebook
Yfirlýsing Ragnhildar á Facebook
Yfirlýsing Ragnhildar á Facebook Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert