Valdís Þóra hálfnuð með fyrsta hring

Valdís Þóra Jónsdóttir er í eldlínunni í Marokkó.
Valdís Þóra Jónsdóttir er í eldlínunni í Marokkó.

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, hóf leik á lokaúrtökumótinu fyrir sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki í Marrakech í Marokkó í morgun. Valdís Þóra hefur leikið níu holur og er á einu höggi yfir pari. 

Valdís Þóra er eins og sakir standa í 52. sæti á mótinu, en 30 efstu kylfingarnir á mótinu fá keppnisrétt á LET-Evrópumótaröðinni og þeir sem hafna síðan í sætum 31-60 fá takmarkaðan keppnisrétt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert