Ólafía fagnaði meðal höfrunga

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær teighögg á Bahama-eyjum.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær teighögg á Bahama-eyjum. AFP

Kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir stóð sig gríðarvel á fyrsta móti sínu á LPGA-mótaröðinni í golfi, sterkustu kvennamótaröð í heimi, á Bahama-eyjum um helgina.

Ólafía lék þrjá hringi af fjórum undir pari og komst auðveldlega í gegnum niðurskurðinn. Hún má því sannarlega vera ánægð, og ekki er að sjá annað en að hún hafi verið það. Hún fagnaði góðum árangri með því að synda með höfrungum á Bahama-eyjum, eins og meðfylgjandi mynd á aðdáendasíðu hennar sýnir.

Næsta mót Ólafíu er svo í Ástralíu um miðjan næsta mánuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert