Tiger hættur keppni

Tiger Woods.
Tiger Woods. AFP

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er hættur keppni á Dubai Classic-mótinu í golfi vegna meiðsla í baki.

Tiger, sem er 41 árs gamall og hefur unnið 14 risamót á ferli sínum, sneri til baka inn á golfvöllinn í desember eftir 15 mánaða fjarveru en hann þurfti að gangast undir tvær aðgerðir vegna meiðsla í baki sem hafa verið að hrjá hann síðustu árin.

Tiger náði að spila einn hring á Dubai Classic-mótinu og ekki er hægt að segja að frammistaða hans hafi verið góð. Hann lék hringinn á fimm höggum yfir pari eða á 77 höggum og tókst ekki að ná einum einasta fugli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert