Valdís skráð til leiks í Ástralíu

Valdís Þóra Jónsdóttir
Valdís Þóra Jónsdóttir ljósmynd/GSÍ

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, er skráð til leiks á fyrsta mótinu á keppnistímabilinu á Evrópumótaröðinni, LET. 

Valdís vann sér inn keppnisrétt á mótaröðinni fyrir árið 2017 þegar hún hafnaði í öðru sæti í úrtökumótunum seint á síðasta ári. Er hún þriðja íslenska konan sem nær þeim áfanga en áður höfðu þær Ólöf María Jónsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir afrekað það. 

Samkvæmt heimasíðu LET er Valdís með keppnisrétt á fyrsta mótinu sem heitir Oates Viv open og fer fram í Ástralíu 9.  - 12. febrúar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert