Dagskráin framundan er þétt hjá Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur á LPGA-mótaröðinni bandarísku. Hún er á leið til Ástralíu og á von á því að spila í 5-6 mótum á 6-7 vikum á næstunni. Hún á þó eftir að skipuleggja það betur en ekki er algengt að kylfingar á stærstu mótaröðunum taki meira en fimm mót í röð áður en hvíld frá keppni er tekin.
„Ég fer til Ástralíu á föstudag (á morgun). Flýg til Óslóar, Duabi og þaðan til Ástralíu. Ferðalagið mun taka 26 tíma og ég fæ nokkra daga til að jafna mig á ferðalaginu og tímamismun. Ég kem til Íslands í stutt stopp eftir mótið í Ástralíu en það verður þá líklega síðasta Íslandsheimsóknin í nokkuð langan tíma. Í framhaldinu tek ég væntanlega nokkur mót í röð á mótaröðinni í Bandaríkjunum,“ sagði Ólafía þegar Morgunblaðið spjallaði við hana á blaðamannafundi hjá KPMG í gær.