Ólafía í magnaðri myndatöku

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær teighögg á Bahama-eyjum.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær teighögg á Bahama-eyjum. AFP

Kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir undirbýr sig nú fyrir sitt annað mót á LPGA-mótaröðinni í golfi, sterkustu kvennamótaröð heims, sem fram fer í Ástralíu í næstu viku.

Ólafía heldur út á morgun, en áður en hún fór var hún í myndatöku á vegum hennar helsta styrktaraðila, KPMG.

Eins og meðfylgjandi mynd sýnir má búast við því að myndasyrpan úti í guðs grænni náttúrunni muni koma ansi vel út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert