Valdís Þóra í 22.-34. sæti

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/LET/Tristan Jones

Kylf­ing­ur­inn Val­dís Þóra Jóns­dótt­ir, úr Leyni á Akra­nesi, fór vel af stað á sín­um fyrsta hring á Evr­ópu­mótaröðinni, LET, í Ástr­al­íu í gærkvöld.

Val­dís lék á 71 höggi eða á tveim­ur und­ir pari vall­ar­ins og er í 22.-34. sæti. Hún fékk alls þrjá fugla, einn skolla og 15 pör á hringnum.

Laura Davies frá Englandi er í forystu eftir en hún lék á 65 höggum eða átta höggum undir pari vallarins.

Valdís Þóra hefur leik á öðrum hringnum kl. 00.40 í nótt eða klukkan 11.40 að staðartíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert