Þórður hafnaði í 23. sæti

Þórður Rafn Gissurarson.
Þórður Rafn Gissurarson. Ljósmynd/golf.is

Kylf­ing­ur­inn Þórður Rafn Giss­ur­ar­son átti ágætan þriðja dag á Open The Tony Jacklin-mót­inu sem fram fer í Pro Golf-mótaröðinni í Mar­okkó en hann hafnaði í 23. sæti á mótinu.

Þórður Rafn lék á 72 höggum eða pari vall­ar­ins og er samtals á sex höggum undir pari en hann lék fyrstu tvo hringina á þremur höggum undir pari. Þórður Rafn lék 14 hol­ur á par­inu og fékk tvo fugla og tvo skolla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert