Fimm Íslendingar í eldlínunni á Spáni

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. mbl.is/Styrmir Kári

Fimm íslenskir kylfingar hefja leik á morgun á Nordic Golf atvinnumótaröðinni. Mótið fer fram á PGA Catalunya Resort rétt við Barcelona á Spáni. Þetta kemur fram á golf.is.

Mótið er hluti af Ecco mótaröðinni sem er samstarfsverkefni sérsambanda á Norðurlöndunum og er mótaröðin í þriðja styrkleikaflokki í Evrópu.

Mótið heitir Mediter Real Estate Masters. Íslensku kylfingarnir sem taka þátt eru: Axel Bóasson (GK), Haraldur Franklín Magnús (GR), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), Birgir Leifur Hafþórsson (GKG) og Andri Þór Björnsson (GR).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert