Bandaríski kylfingurinn Jordan Spieth hrósaði sigri á Pebble Beach Pro/Am-mótinu í golfi í gærkvöldi en mótið er hluti af PGA-mótaröðinni.
Spieth lék hringina fjóra á samtals 19 höggum undir pari en fyrir lokahringinn var hann með sex högga forskot á næsta mann.
Þetta var níundi sigur hins 23 ára gamla kylfings á PGA-mótaröðinni. Kelly Kraft hafnaði í öðru sæti, 15 höggum undir parinu, og Dustin Johnson varð þriðji, 14 höggum undir pari.