Næsta LPGA-mót Ólafíu hefst í kvöld

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur í kvöld leik á sínu öðru móti á LPGA-mótaröðinni í golfi. Leikið er í Adelaide í Ástralíu og er Ólafía í fjórða ráshópi sem byrjar kl. 20:41 í kvöld að íslenskum tíma, eða kl. 7:11 á fimmtudagsmorgni að staðartíma en tímamismunurinn er 10,5 klukkustundir.

Ólafía er í ráshópi með Belen Mozo frá Spáni og Celine Herbin frá Frakklandi fyrstu tvo keppnisdagana. Þær hefja leik á 10. teig.

Mótið heitir ISPS Handa og fer fram á The Royal Adelaide, og er par vallarins 73 högg. Heildarverðlaunafé mótsins nemur 1,3 milljónum Bandaríkjadala eða um 150 milljónum króna, sem er sama upphæð og var í verðlaun á fyrsta móti ársins á Bahamaeyjum, þar sem Ólafía varð í 69.-72. sæti.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert