Ólafía í 41.-61. sæti eftir fyrsta hring

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/Tristan Jones

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 41.-61. sæti eftir fyrsta hringinn á Opna ástr­alska mót­inu í golfi í Adelai­de en það er annað mót árs­ins á LPGA-mótaröðinni, sterk­ustu mótaröð heims.

Kylfingarnir í seinna hollinu voru að ljúka keppni og en Ólafía kláraði sinn hring laust fyrir klukkan 2 í nótt að íslenskum tíma þar sem hún lék á 72 höggum eða einu höggi undir pari.

Ólafía lék fyrsta hring á höggi undir pari eins og fylgst var með í beinni lýsingu hér á mbl.is í gærkvöld og nótt.

Katherine Kirk frá Ástralíu er með forystu eftir fyrsta hringinn en hún lék hann á 65 höggum eða átta höggum undir pari.

Ólafía fer seinna af stað á öðrum hring en hún hefur þar keppni næstu nótt um klukkan 1.30. Keppendur eru 144 og um það bil 70 þeirra halda áfram eftir niðurskurðinn að loknum öðrum hring. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert