Andri Þór lék best Íslendinganna

Andri Þór Björnsson.
Andri Þór Björnsson. Ljósmynd/GSÍ

Fjórir íslenskir kylfingar léku á SGT Winter Series Lumine Lakes-mótinu í Nordic Tour-mótaröðinni sem lauk á Spáni í gær.

Andri Þór Björnsson úr GR náði bestum árangri en hann endaði í 25. sæti á -2 samtals en hann lék hringina þrjá á 212 höggum (73-71-68).

Haraldur Franklín Magnús, GR, endaði í 45. sæti á 217 höggum +3 (72-68-77). Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR og Axel Bóasson úr Keili komust ekki í gegnum niðurskurðinn. Guðmundur Ágúst lék á +4 samtals (70-77) og Axel lék á +10 samtals (77-76).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert