Komast Ólafía og Valdís á Ólympíuleikana?

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir eiga báðar ágæta möguleika á að blanda sér í baráttuna um sæti á næstu Ólympíuleikum sem fram fara í Tókýó í Japan árið 2020. Þetta kemur fram á golf.is.

Ólafía var í sæti nr. 498 á heimslistanum 6. mars og Valdís Þóra var í sæti nr. 690. Alls komast 60 kylfingar inn á Ólympíuleikana hjá báðum kynjum eða 120 keppendur samtals. Viðamikið kvótakerfi er í gangi varðandi þátttökurétt keppenda og er það gert til þess að sem flestar þjóðir eigi möguleika á að koma keppendum inn á ÓL.

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/LET/Tristan Jones

Sem dæmi má nefna að á ÓL í Ríó de Janiero í Brasilíu í fyrra komst Cathryn Bristow frá Nýja-Sjálandi inn á ÓL. Hún var í sæti nr. 446 þegar heimslistinn var uppfærður 11. júlí 2016 en það var síðasti möguleiki keppenda til þess að bæta stöðu sína á heimslistanum.

Á þeim tíma voru Ólafía Þórunn og Valdís Þóra í sætum nr. 714 og 731 á heimslistanum. Ólafía var því 268 sætum frá því að komast inn og Valdís Þóra var 285 sætum frá því að komast inn á ÓL.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert