273 ára langri einokun karla lokið

Séð yfir 18. flöt á Muirfield-vellinum.
Séð yfir 18. flöt á Muirfield-vellinum. AFP

Hinn sögufrægi Muirfield-golfklúbbur í Skotlandi hefur samþykkt að gefa konum tækifæri á að sækja um aðild að klúbbnum í fyrsta sinn í sögu hans, eða í 273 ár.

80% félaga kusu með því að konum væri veitt félagsaðild, en Muirfield-völlurinn missti af því að halda Opna breska meistaramótið í fyrra vegna kvennabannsins.

Muirfield-golfklúbburinn var stofnaður árið 1744 og þurftu tveir þriðju félaga að samþykkja breytinguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert