Ólafía Þórunn hefur leik á fimmtudaginn

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/GSÍ

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leik á sínu þriðja móti á LPGA-mótaröðinni í Phoenix í Bandaríkjunum á fimmtudaginn.

Ólafía lék á Pure Silk-mótinu á Bahamas í lok janúar og þar endaði hún í 69. sæti á sínu fyrsta mótiog komst í gegnum niðurskurðinn. Á ISPS-Handa-mótinu í Ástralíu endaði hún í 30. sæti.

Níu af tíu efstu á heimslistanum verða með á mótinu í Phoenix og þeirra á meðal er Sei Young Kim frá Suður-Kóreu sem fagnaði sigri á þessu móti í fyrra.

Spilaðar verða 72 holur á fjórum dögum og verður niðurskurður eftir tvo fyrstu hringina. Heildarverðlaunaféð á mótinu verður 165 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert