Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er heldur betur í stjörnuráshóp fyrstu tvo dagana á þriðja LPGA-móti sínu í golfi sem fram fer í Phoenix og hefst á morgun.
Ólafía mun spila með þeim Cheyenne Woods eins og á fyrsta mótinu á Bahama-eyjum, og einnig Michelle Wie sem er einn þekktasti kvenkylfingur sögunnar. Golf.is greinir frá.
Wire er 27 ára gömul og sigraði á sínu fyrsta risamóti árið 2014 á Opna bandaríska meistaramótinu. Wie er einna þekktust fyrir að hafa leikið á PGA mótaröðinni í karlaflokki árið 2004 en þá var hún aðeins 16 ára gömul. Hún náði að komast í 6. sæti á heimslistanum árið 2014 en hún hefur hrapað niður í 173. sæti frá þeim tíma. Mótið hjá Wie í Phoenix verður 240. mót hennar á LPGA mótaröðinni en það þriðja hjá Ólafíu.
Aðstoðarmaður Ólafíu á þessu móti verður þaulreyndur kylfuberi sem heitir Zac en hann er frá Hawaii. Hann hefur verið aðstoðarmaður hjá reyndum kylfingum á borð við Carolin Masson frá Þýskalandi og systranna frá Taílandi, Ariya Jutanugarn og Moriya Jutanugarn.