Valdís Þóra keppir í Frakklandi

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/LET/Tristan Jones

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL er komin til Frakklands þar sem hún tekur þátt í Terre Blanche-mótinu í golfi sem er í LET-mótaröðinni.

Valdís Þóra hefur keppni á fimmtudaginn en alls eru 114 kylfingar skráðir til keppni. Spilaðir verða þrír hringir og verður niðurskurður eftir tvo fyrstu hringina.

Að því er fram kemur á kylfingur.is hefur Valdís Þóra verið við æfingar á Novo Sancti Petri-svæðinu á Spáni síðustu vikurnar þar sem hún hefur búið sig undir mótið í Frakklandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert