Hoffman búinn að tapa tveimur höggum

Sergio Garcia hefur farið vel af stað á öðrum hring …
Sergio Garcia hefur farið vel af stað á öðrum hring á Masters-mótinu. AFP

Bandaríkjamaðurinn Charley Hoffm­an, sem var með forystu eftir fyrsta hringinn á Masters-mót­inu í golfi á Augusta, er búinn að tapa tveimur höggum á fyrstu átta honum sem hann hefur spilað í dag.

Hoffman er enn með forystu en hann hefur spilað á samtal fimm höggum undir pari. Spánverjinn Sergio Garcia er í öðru sætinu, þremur höggum undir pari. Hann hefur farið vel af stað og á tveimur höggum undir pari eftir sjö holur. Lítið er marka skorið á þessum tímapunkti enda eiga margir kylfingar eftir að hefja leik í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert