Hoffman og Garcia í forystu

Phil Mickelson slær úr sandgryfjunni.
Phil Mickelson slær úr sandgryfjunni. AFP

Bandaríkjamaðurinn Charley Hoffman og Spánverjinn Sergio Garcia eru í forystusætunum á Masters-mótinu í golfi á Augusta Nati­onal vellinum.

Hoffmann lék annan hringinn í dag á þremur höggum yfir pari og er samtals á fjórum höggum undir pari eins og Sergio Garcia en hann lék hringinn í dag á þremur höggum undir pari.

Bandaríkjamennirnir Rickie Fowler og Phil Mickelsen eru meðal þeirra kylfinga sem eru samtals á tveimur höggum undir pari Fowler hefur lokið við að spila 6 holur og Mickelson 5.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert