Toppbaráttan harðnar á Masters-mótinu

Phil Mickelson.
Phil Mickelson. AFP

Toppbaráttan er heldur betur að harðna á Masters-mótinu í golfi en fjórir kylfingar eru nú jafnir í efsta sæti.

Bandaríkjamaðurinn Charley Hoffman og Spánverjinn Sergio Garcia hafa lokið leik í dag og eru báðir fjórum höggum undir pari og það eru líka Bandaríkjamaðurinn Ricky Fowler og Belginn Thomas Pieters. Fowler er búinn að spila 14 holur og Pieters 15.

Phil Mickelson er á tveimur höggum undir pari eftir 12 holur en N-Írinn Rory McIlroy er á einu höggi yfir pari og hann hefur lokið leik.

Margir kylfingar eru enn úti á vellinum og eiga eftir að ljúka leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert