Valdís Þóra komst áfram

Valdís Þóra Jónsdóttir
Valdís Þóra Jónsdóttir Ljósmynd/LET/Tristan Jones

Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir komst nokkuð örugglega í gegnum niðurskurðinn á Lalla Meryem-mót­inu í golfi sem fram fer í Mar­okkó um þess­ar mund­ir. Hún lék fyrstu tvo hringina á samtals þrem höggum yfir pari. 

Valdís spilaði annan hring mótsins í dag og stóð sig með miklum ágætum. Hún fékk fjóra fugla, þrjá skolla og ellefu pör og var því á einu höggi undir pari í dag. Hún bætir sig því um fimm högg á milli daga. 

Hún er í 34.-42. sæti mótsins fyrir þriðja daginn sem fer fram á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert