Valdís lék vel á fyrstu níu holunum

Valdís Þóra Jónsdóttir hefur leikið vel i Marokkó í dag.
Valdís Þóra Jónsdóttir hefur leikið vel i Marokkó í dag. Ljósmynd/Tristan Jones

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, lék fyrstu níu holurnar á þriðja hring sínum á Lalla Meryem-mót­inu í golfi á 36 höggum sem er par vallarins.

Valdís Þóra hefur leikið samtals á þremur höggum yfir pari vallarins á mótinu og er í 18. - 22. sæti mótsins eins og sakir standa.

Mótið er annað mót Evr­ópu­mót­araðar­inn­ar og fer fram á Golf Dar Es Salam-vell­in­um í Mar­okkó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert