Valdís lék fyrri hlutann á pari

Valdís Þóra Jónsdóttir er að spila lokahringinn á Lalla Meryem-mótinu …
Valdís Þóra Jónsdóttir er að spila lokahringinn á Lalla Meryem-mótinu þessa stundina. Ljósmynd/Tristan Jones

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, lék fyrstu níu holurnar á lokahring Lalla Meryem-mótsins í golfi á pari vallarins. Valdís Þóra hefur því leikið samtals á fjórum höggum yfir pari vallarins á mótinu.

Lalla Meryem-mótið er annað mót Evrópumótaraðarinnar sem er næst sterkasta mótaröðin í golfi kvenna á eftir LPGA mótaröðinni. Leikið er á Golf Dar Es Salam vellinum í Marokkó. Valdís Þóra mun ljúka keppni á Lalla Meryem-mótinu um hádegi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert