Ólafía af stað eftir hádegi

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, á rástíma klukkan 14.05 að íslenskum tíma, 9.05 að staðartíma, á öðrum hring á Texas Shootout-mótinu í LPGA-mótaröðinni sem fram fer í Dallas í Texas.

Ólafía lenti í vandræðum á fyrsta hring, en hún lék hann á þremur höggum yfir pari og er samtals í 88.-117. sæti. Fyrst eftir að hringnum lauk, uppúr miðnætti að íslenskum tíma, var skráð að Ólafía væri á fjórum höggum yfir pari en það var síðan leiðrétt um eitt högg. Það gerir möguleika hennar mun betri.

Núverandi niðurskurður miðast við tvö högg yfir pari en reiknað er með að efstu 70 kylfingarnir komist áfram.

Mi Jung Hur frá Suður-Kóreu er efst eftir fyrsta hring á sex höggum undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert