Ólafía flýgur upp töfluna í Texas

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur hefur leikið glæsilega það sem af á öðrum hring Texas Shootout mótsins á LPGA-mótaröðinni í golfi í Dallas í Texas.

Ólafía hóf keppni á þriðja tímanum í dag og hefur lokið níu holum. Hún hefur leikið á fjórum höggum undir pari vallarins í dag og þar sem hún var á þremur yfir pari á fyrsta hringnum í gær er hún núna á einum undir pari.

Haldi hún þessum dampi á seinni níu holunum á hún alla möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn í dag. Ólafía er núna í 33. til 42. sæti en eins og staðan er núna kæmust allar áfram sem eru á einu höggi yfir pari.

Ólafía hefur um leið nálgast þær fyrstu á mótinu en Mi Jung Hur, sem á eftir að hefja keppni í dag, er á 6 höggum undir pari og á eftir henni koma Inbee Park og Angela Stanford á fimm höggum undir pari. Þær eru meira en hálfnaðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert