Fín byrjun hjá Valdísi Þóru

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/ladieseuropeantour.com

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hefur lokið við að spila fyrsta hringinn á VP Bank Ladies Open mótinu í golfi sem hófst í Sviss í morgun en mótið er hluti af LET Access mótaröðinni.

Valdís Þóra lék hringinn á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari. Hún er sem stendur í 8.-10. sæti en ekki hafa allir kylfingar lokið keppni í dag. Valdís krækti í fjóra fugla á hringnum í dag, fékk tvo skolla og lék 12 holur á parinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert