Bjarki nældi sér í gullið

Pálmi Þór Pálmason, Bjarki Guðnason og Elín Ólafsdóttir.
Pálmi Þór Pálmason, Bjarki Guðnason og Elín Ólafsdóttir.

Þrír íslenskir keppendur úr röðum Golfsamtaka fatlaðra á Íslandi tóku þátt á Nordic Special Golf Cup 2017 sem fram fór í Helsingør í Danmörku um nýliðna helgi. Árangur þeirra var glæsilegur en keppt var á frábærum og krefjandi golfvelli í Helsingør segir í frétt á vef Golfsambands Íslands, golf.is.

Bjarki Guðnason úr GS lék á 42 punktum þegar mest á reyndi og sigraði hann í B-flokki leikmanna með 14,1-30 í forgjöf. Elín Ólafsdóttir úr GK varð fimmta í B-flokknum.

Pálmi Þór Pálmason úr GKB keppti í A-flokki þar sem keppendur voru með forgjöf 0-14. Pálmi endaði í sjötta sæti en í A-flokki var keppt í höggleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert