Valdís á pari eftir fyrsta dag

Valdís Þóra leikur í LET-mótaröðinni.
Valdís Þóra leikur í LET-mótaröðinni. Ljósmynd/LET/Tristan Jones

Valdís Þóra Jónsdóttir lék fyrsta hring á Jabra Ladies Open-mótinu í golfi á pari vallarins, 71 höggi. Mótið er hluti af LET Access-mótaröðinni, sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.

Valdís lék flott golf, en hún fékk þrjá fugla og þrjá skolla. Hægt er að fylgjast með stöðu mótsins, en Valdís Þóra á rástíma kl 9:09 í fyrramálið.

mbl.is: Valdís hefur leik í Frakklandi í dag

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert