Valdís Þóra Jónsdóttir stendur sig vel á Jabra Ladies Open mótinu í Evian í Frakklandi. Valdís lék fyrri níu holur vallarins í dag á einu höggi undir pari, en hún lék á pari í gær, eða 71 höggi. Eftir níu holur er Valdís jöfn í 13-21. sæti.
Hægt er að fylgjast með gengi Valdísar Þóru hér.