13 holur á Íslandsmótinu í holukeppni

Berglind Björnsdóttir og Gísli Sveinbergsson urðu Íslandsmeistarar í fyrra.
Berglind Björnsdóttir og Gísli Sveinbergsson urðu Íslandsmeistarar í fyrra. Ljósmynd/GSÍ

Golfsamband Íslands hefur ákveðið í samstarfi við Golfklúbb Vestmannaeyja, að fylgja eftir nýlegu afnámi á 18 holna kröfunni úr mótsreglugerðum GSÍ með því að leika 13 holur í stað 18 í KPMG bikarnum – Íslandsmótinu í holukeppni, sem fram fer í Eyjum 23. – 25. júní næstkomandi. Þetta verður í fyrsta sinn, svo vitað sé, sem landskeppni rótgróinnar golfþjóðar fer fram á velli með færri en 18 holur.

Afnám GSÍ á 18 holna kröfunni vakti talsverða athygli í golfheiminum og segir Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ, að rætt hefði verið lauslega um að fylgja þeirri ákvörðun eftir með því að halda Íslandsmótið í holukeppni á velli með færri en átján holur.

„Við ákváðum ásamt Eyjamönnum að láta slag standa núna, frekar en að bíða færis síðar, eftir að nokkrar flatanna í Eyjum virtust hafa mátt þola óvenju mikla sjávarseltu. Við gerum þetta til að hlífa umræddum flötum og af virðingu við keppendur, sem eiga skilið að leika við bestu mögulegu aðstæður. Enn fremur er þetta táknræn aðgerð til að vekja golfhreyfinguna til umhugsunar um það hversu mikla áherslu við eigum að leggja á 18 holur. Þar höfum við tekið forystu á alþjóðavettvangi og finnum fyrir meðbyr vegna þess,“ segir Haukur.

Eftir að hugmyndin kom fyrst upp leituðu GSÍ og GV aðstoðar við frekari útfærslu hjá Edwin Roald golfvallahönnuði, sem vakið hefur máls á og leitt umræðu innanlands og utan um að taka aftur upp þann sveigjanlega holufjölda sem áður einkenndi golfleikinn, eins og fram kemur á vef hans, why18holes.com.

Svona verður Íslandsmótið í holukeppni leikið.
Svona verður Íslandsmótið í holukeppni leikið. Ljósmynd/GSÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert