Valdís Þóra í öðru sæti í Tékklandi

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/GSÍ

Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir fer vel af stað og er í öðru sæti eftir fyrsta hring á Foxconn Czech Ladies-mótinu sem er hluti af LET Access-mótaröðinni, næststerkustu mótaröð Evrópu í golfi. 

Valdís lék á 68 höggum í dag eða þremur höggum undir pari. Hún fékk fimm fugla og tvo skolla á hringnum. Vikki Laing er í efsta sæti á fjórum höggum undir pari og þar á eftir kemur Valdís og fimm aðrir kylfingar á þremur undir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert