Sonur Feherty látinn

David Feherty missti son sinn á dögunum.
David Feherty missti son sinn á dögunum. Ljósmynd/Heimasíða David Feherty

Norður-Írinn og fyrrverandi atvinnumaðurinn í golfi, David Feherty, tilkynnti í gær á Twitter-síðu sinni að elsti sonur hans, Shey, hafi látið lífið af völdum of stórs eiturlyfjaskammts. Shey lést 29. júlí síðastliðinn, á 29 ára afmælisdegi sínum. Feherty átti sjálfur í vandræðum með eiturlyf og áfengi, en hefur verið allsgáður síðan árið 2005.

„Frumburðurinn minn er farinn frá mér, hann lést af völdum of stórs skammts á 29 ára afmælisdeginum sínum. Blessað sé fallega hjartað hans, ég mun halda áfram að berjast.“

Feherty lék á Evrópu- og PGA-mótaröðinni, en hann gerðist atvinnumaður árið 1976 og lauk ferlinum 21 ári síðar. Hann vann 10 mót sem atvinnumaður og gerðist fréttamaður fyrir CBS á PGA-mótum. Hann er einnig með sína eigin þætti á Golf Channel sem hafa vakið miklar vinsældir.

Feherty er mikils metinn í golfheiminum.
Feherty er mikils metinn í golfheiminum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert