Curry leikur á sterku golfmóti

Stephen Curry leikur á sterku golfmóti um helgina.
Stephen Curry leikur á sterku golfmóti um helgina. AFP

Körfuknattleiksstjarnan Stephen Curry hóf leik í dag á Ellie May Classic mótinu í golfi, en mótið er hluti af Web.com mótaröðinni. Curry fékk boð um að vera með á mótinu, en kappinn er með rúmlega 2 í forgjöf og mikill golfaðdáandi. 

Curry hefur sagt að hann dreymi um að leika á PGA-mótaröðinni, en ekki eru allir sáttir við að hann skuli leika á atvinnumannamóti þar sem hann er áhugamaður.

Curry leikur á einu höggi yfir pari eftir þrjár holur en hægt er að sjá stöðuna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert