Curry kom í hús á 74

Curry vakti mikla athygli á mótinu.
Curry vakti mikla athygli á mótinu. AFP

Körfuboltamaðurinn Stephen Curry lauk fyrsta hring Ellie May Classic mótsins á 74 höggum eða á fjórum höggum yfir pari. Curry fékk fimm skolla, einn skramba og krækti í þrjá fugla. 

„Ef þú hefðir sagt mér fyrirfram að ég kæmi í hús á 74 höggum hefði ég allan daginn þegið það," sagði kappinn sem er ekki þekktur fyrir takta sína á golfvellinum.

Curry var tvíveigis valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar og hefur tvisvar unnið meistaratitilinn í NBA-deildinni.

Nicholas Thompson er efstur en hann lék á sjö höggum undir pari í gær. Curry hefur leik í dag kl. 14:15 að staðartíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert