Axel og Andri í fjórða og fimmta sæti

Axel Bóasson
Axel Bóasson Ljósmynd/GSÍ

Alls tóku fimm íslenskir kylfingar þátt á úrtökumóti fyrir Made in Denmark mótið sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Þrír kylfingar á þessu móti fengu farseðil á Made in Denmark-mótið sem fer fram í Danmörku 24.-27. ágúst nk. Mótið var einnig  hluti af Nordic Tour-atvinnumótaröðinni sem er í þriðja styrkleikaflokki atvinnumótaröða í Evrópu.

Axel Bóasson úr GK var tveimur höggum frá efsta sætinu en Íslandsmeistarinn 2017 lék á sex höggum undir pari og endaði í fjórða sæti. Andri Þór Björnsson úr GR varð fimmti á fimm höggum undir pari og er það besti árangur Andra á mótaröðinni.

Haraldur Franklín Magnús, GR, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, og Ólafur Björn Loftsson, GKG, voru einnig meðal keppenda í mótinu. Haraldur Franklín varð 18. á tveimur höggum undir pari, Guðmundur Kristján endaði í 54. sæti á tveimur höggum yfir pari og Ólafur Björn endaði í 90. sæti á sjö höggum yfir pari. 

Fimm efstu á stigalista Nordic Tour fá keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, Challenge Tour, á næsta tímabili. Eins og staðan er núna þá eru Axel og Haraldur Franklín á meðal fimm efstu. Axel er í 2. sæti og Haraldur Franklín í 4. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert