Kim In-kyung vann Opna breska

Kim In-kyung fagnar sigri í hellirigningu.
Kim In-kyung fagnar sigri í hellirigningu. AFP

Kim In-kyung frá Suður-Kóreu bar sigur úr býtum á Opna breska meistaramótinu í golfi. Hún lék hringina fjóra á samanlagt 18 höggum undir pari vallarins og var hún tveimur höggum á undan Jodi Shadoff frá Englandi sem varð önnur.

In-kyung var með sex högga forystu fyrir lokadaginn og tókst að lokum að sigla fyrsta sigri sínum á risamóti í hús. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var á meðal þátttakenda á mótinu, en hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn að móti hálfnuðu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert