Sungu með Bieber á æfingahring

Létt var yfir köppunum í gær á Quail Hollow vellinum.
Létt var yfir köppunum í gær á Quail Hollow vellinum. AFP

Kylfingar léku æfingahring í gær fyrir PGA-meistaramótið sem hefst á morgun. Það er þó ekki frásögufærandi, nema að á meðal þeirra var þekktur kappi, þó ekki þekktur fyrir golf. Justin Bieber fylgdi Kevin Na, Wesley Bryan og Bubba Watson á hringnum og brustu þeir í söng á miðjum vellinum.

Bieber fylgist mikið með golfi og hefur áður mætt að fylgjast með mótum, en ekki sungið með kylfingunum sjálfum. Bryan var með lögin alveg á hreinu, en ekki var sömu að segja um Na, sem sagði í myndbandinu „Ég kann ekki textann,“ og hló þegar að Bieber ætlaði að fá hann til að syngja með sér.

Létt var yfir köppunum, en Na birti myndband af atvikinu á Instagram-síðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert