Ólafía tók Eið Smára í golfkennslu

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. mbl.is/Golli

Það má með sanni segja að atvinnumannabragur hafi verið á milli þeirra Eiðs Smára Guðjohnsen og Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur þegar þau hittust á golfvellinum.

Knattspyrnukappinn Eiður Smári fékk þá góð ráð frá atvinnukylfingnum Ólafíu Þórunni og það er ekki annað að sjá en að kappinn sé að hlusta af athygli.

Eiður Smári er sem kunnugt er án félags eftir að hafa náð sér af erfiðum meiðslum síðasta vetur. Ólafía Þórunn hefur hins vegar verið að brjóta blað í íslenskri golfsögu og þegar tekið þátt í tveimur risamótum síðustu vikur.

Eiður Smári hlustar á Ólafíu Þórunni.
Eiður Smári hlustar á Ólafíu Þórunni. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert