Kylfingurinn Þórður Rafn Gissurarson hafnaði í 32. sæti á Opna Starnberg mótinu sem fram fór í Þýskalandi og lauk í dag. Mótið er hluti af Pro Golf-mótaröðinni.
Þórður Rafn lék hringina þrjá samanlagt á fjórum höggum undir pari. Hann spilaði fyrsta hringinn á tveimur undir pari og fylgdi því svo með tveimur hringjum á einu höggi undir pari.
Mótaröðin er þriðja í styrkleikaflokknum í Evrópu, en á undan henni kemur Áskorendamótaröðin og loks Evrópumótaröðin.