Andri og Guðmundur báðir úr leik

Andri Þór Björnsson.
Andri Þór Björnsson. Ljósmynd/GSÍ

Andri Þór Björnsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson eru báðir úr leik eftir þriðja hring á 1. stigs úrstökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi, en leikið er á Frilford-vellinum á Englandi. 

Andri lék á 74 höggum í dag, tveimur höggum yfir pari og lék hann hringina þrjá á samtals fimm höggum yfir pari og er í 54.-59. sæti. Efstu 50 kylfingarnir komust í gegnum niðurskurðinn. 

Guðmundur Ágúst náði sér ekki á strik í dag, lék á 80 höggum eða átta höggum yfir pari. Hann er á samtals 15 höggum yfir pari eftir hringina þrjá og í 84.-86. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert